Hæ þetta er kærastan mín.
Þið virðist ekki sjá hana,
horfið bara í burtu og borið bara í nefið.
Að nú í svona flotta stelpu er nú ekki alveg gefið.
Hvernig er annað hægt en að taka eftir,
eruði eitthvað þroskaheftir.
Fullkominn líkami, silkihúð.
Svona stúlka er ekki bara keypt útí búð.
Hlaut að vera…..
hún er svo fullkomin, sú besta
draumadísin mín, allt svo fullkomið.
Hún var fullkomin.
Þá mundi ég að hún á ekki heima hér,
heldur í herbergi 1 í höfðinu á mér.
Gat ekki annað verið því að…
enginn er fullkominn…
ekki nema…
stúlkan í kollinum á mér.