Í nótt
horfði ég
á þig sofa
meðan tíminn
kom og fór
eins og vindhviða.
Ekkert
sem tíminn flytur mér
í þessum gráa heimi
er mikilvægara
en velferð þín
elsku stelpan mín.

Ég horfi á þig sofa
meðan tíminn
kemur og fer
eins og vindhviða.

Tíminn ber með sér
visku og ljós
harm og myrkur.

Ekkert flytur hann
mér mikilvægara
en velferð þína
elsku dóttir mín.