Lífið mitt er leitt og snúið
legg ég það í kassa nú
Hvenær verður heila búið
horfið suður, aftur snú?

Drasl og rusl og dauðar eigur
dansa fyrir augum mér
Ó mig auma, einhver seigur
álpaðist að hjálpa mér.

Burt úr sorg og brátt í sollinn
berst mín glaða persóna.
Snýst mitt hjarta, hollinn skollinn
styttist nú í perr-dóna.

Farðu vel mín sveitin fagra
farnist vel þér, menn og mýs.
Ykkur kveður sál mín magra
má til borgar hverfa, skvís.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.