Í aftankyrrð við ferjuflóa færist húm yfir móðu og dal á hraunnefi syngur lítil lóa ljóð sitt til dýrðar fögrum degi. Kvöldsólin læðist um hraun og móa í roðageislum frá himnasal færandi töfrabirtu um fjalladal og fjólubláma á Laxár vegi.
Þú ert fyrir víst mesta rómantíkurskáld Huga fyrr og síðar. Ég meina það bara sem hrós og klappa fyrir þér að hafa kjark í að yrkja landi og þjóð til dýrðar, er sjálf alltof mikill svartsýnispúki til þess að geta höndlað fegurð umhverfisins. YOU RULE
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.
Mér finnst þetta rím mjög sérstakt og flott. Mætti kanski aðeins laga hrynjandina en annars ert þú mjög vel máli farin og hefur gott skynbragð á fegurð. Það sem mér leiðist við rómantík er þegar hún er ofsoðin og sykurklístruð og lítið bitastæð innan um öll bleiku skýin. Á hinn bóginn kemur hún mjög vel út þegar fólk kann að fara með hana. Húrra fyrir þér.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..