þú
þú áttir að koma

þú varst örlögin mín

orðin þín eins og litlar stjörnur í laginu

kláraðir setningarnar mínar
opnaðir huga minn
sál þín eins og spegilmynd minnar

snerir öllu á hvolf
örlagavefurinn minn
vafðir mér í þig
og beist mig í öxlina
…í gær…
…á meðan…

ég átti aldrei valkosti
varð að elska þig