Þegar veröldin vaknar að morgni
vilji og vonir þig fylla
heimurinn þig vill hilla
Háir herrar
smáar sálir
hvunndagshetjur
syngja betur
Allt er í heiminum hverfult
mannanna verk og vonir
Góðar vættir veita vernd
vondum öflum eyða
og kærleikurinn kæfir hið illa
mannvonskuna stilla