Það eru nú fæstir jafn vitlausir og ég

Fyrir löngu síðan spurði ég þig
hvort það gæti verið að þú værir það sem ég hafði leitað svo lengi að
Þú sagðir já

Fyrst var allt svo spennandi og við svo ástfangin
Svo liðu árin
Og þá kom gluggapósturinn og uppvaskið og kúkableyjurnar

Einn daginn datt mér í hug að grasið væri nú alveg örugglega grænna
einhvers staðar annars staðar
Við ákváðum að framtíð okkar væri betur borgið ef við færum hvort sína leið

Svo við snerum bökum saman og gengum af stað

En ég gleymdi að taka með í reikninginn hvernig ég færi að því að lifa án þín



24.janúa