Sólstafir kyssa öldutoppana
drekka þá í sig
og leggja í mjúkar
loftkenndar sængur sínar.
“Sjáið litlu dropar”
hvíslar huggulegur sunnanblærinn,
“þarna niðri er lífið”
Og litlu droparnir
steypa sér í kollhnís af gleði
og faðma lífið
á jörðinni.
Ætli þeir
geri sér grein fyrir
mikilvægi sínu?
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.