Sofandi löngum svefni
máttlausan sé ég þig
Allt í hröðum hvelli
hrundi kringum mig
Baráttan er búin
Brunnin vonin er
sorgbitin sálin lúin
sé ei hvert hún fer
Með hausin háan hetjan
horfir eftir þér
flogin og farin getan
fyrir að lifa hér
Margt er mikilmennið
ekki mikið innaní
hátt var haldið ennið
hetjuskapin nú ég flý