ALEINN
Saknarðu mín stundum,
býr þrá í brjósti þér?
Þorirðu að tjá þig,
segja mér?
Hvernig líður þér núna,
ertu leiður, sár?
Þolirðu mig illa
eða finnst þér ég klár?
Þekkir þig einhver allan,
hleypirðu inn?
Fæ ég einhvern tíma
- lykilinn?
Finnst þér ég skrýtin,
eða spennandi?
Finnst þér kannski gaman
að skilja ekki?
:Þ