Í vonleysi ástar minnar
syndi ég í föllnum tárum,
safna og reyni að púsla
saman brotnum loforðum.

Í mixtúru lyga og svika
ligg ég andvaka
hugsandi um manninn
sem hefur sál mína í höndunum
og hjarta mitt
í vasanum.