Silfurlitaður kristalsalur einmanaleikans.

Ég stend alein
Á köldu dansgólfinu
Í silfurlituðum kristalsal einmanaleikans
Þögn gærdagsins
Bergmálar í eyrum mínum
Og tár morgundagsins
Renna niður vanga minn
Á meðan ég bíð
Eftir að einhver komi
Og bjóði mér uppí dans.

mks