Ég horfi á krossinn
blóði borinn
finn ryðlykt af nöglum,
púðurlykt af höglum.

Krossfestur í nútíma
hengi ég haus
og bíð eftir lyftunni
sem flytur mig til
pabba,
pabba okkar allra.

Gaddavírskórónan særir.
Ólýsandi sársauki
nístir vonbrugðið hjarta mitt.
Um leið og mannfólkið lærir
mun ég hætta að deyða fólkið þitt.