Hví fórstu?
Þú skildir mig eftir aleina úti í rigningunni
án regnhlífar.
Ég var nakin
samt fullklædd.
Hönd mín einmana án þinnar handar.
Hjartað brostið.
Þú leist ekki einu sinni við,
heldur gekkst galvaskur áfram
eins og ekkert hafði í skorist.
Hjartað mitt grét eins og ringdi í borginni,
og eftir stóð ég blaut í gegn.