hver ert þú að dæma mig,
farðu burtu, þú þekkir ekki
minn sjúkleik, veist ekki
hve megnugur ég er
mínar hugsanir snúa um að taka
þig eins og litla flugu
og kremja, kremja þig
til dauða með gömlum mogga
ég hræðist það að þú vilt stjórna
segir mér að gera alla það illa
þess á milli á ég að vera góður
og hlýða því sem mér er sagt
hverjum á maður eins og ég
að hlýða, á ég að hlýða
röddinni inní hausnum
sem ég vil kremja
eða hvað
ég skil ekki sjúkleikann,
burtu farðu, sé þíg ekki meir
ég er laus úr óttanum
Þetta er samið eftir áhrif af persónuni Gollrir eða smegells
úr LOTR TTT