Líf
Á harða spretti við þeytumst
yfir engi,
yfir ár
úr fortíðinni
og inn í framtíðina.
Fákurinn sem ber mig
kallast Lif.
Hann er frár á fæti
eins og vindur
og eilífur sem tíminn.
Hvar við endum
veit ég ei.
En við enda reiðtúrsins
verður hann tekinn frá mér
og öðrum gefinn.