Næturmynd
Þegar ég horfi út í næturkyrðinni
brosa til mín utan úr svartnættinu stjörnu skarar
og silfurskær máninn kyssir kaldan hafflötinn.
Frostrósir dansa eins og álfameyjar við gluggann minn
og köld og dimm nóttin vefur ástfangið par mjúkum örmum
sem kyssast undir fölbleikri birtunni frá götuljósinu
handan við húsið mitt.