Bölsýni gærdagsins
og eftirvæntingar
morgundagsins
stíga
enskan vals
í kyrrðinni

Ég sit
í miðri óreiðunni
og bíð þess
milli vonar
og ótta
að einhver
bjóði mér upp
í dans