Rotnaðu ræfillinn,
andlausi auminginn.
Taktu nú þetta til þín:
Lærðu að lesa nett,
stafsettu stundum rétt.
Meðtaktu þessi orð mín.
Æfi þína alla mundu,
orð mín sem þig hérna fundu:
Guðsbarn ertu góði!
Seinna finnur ást og yndi,
smókingklæddur skreyttur bindi,
svitnar yfir þessu ljóði.
Þó svo þroskist seint og illt,
skal vitsmunum nú í þig kýlt.
Þraut þú færð í vetur.
Reyndu sjálfur ljóð að smíða,
svo Hugansvef það megi príða.
Sýndu hvað þú getur!
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.