Að framkvæma … eður ei !
Með þögninni kemur sálarstríð,
sársaukinn er fólginn í göfugmannleikanum.
“Ég elska, þess vegna er ég.” var eitt sinn mælt.
“Ég þegi, þess vegna dey ég.” svara ég.
Innan seilingar en samt svo fjarlæg
situr ástin, svo fávís.
Darri