Sem lífið fljúgi hjá,
er ég staldra hér við,
í nístandi kuldanum
og horfi á baka.

Man þann dag vel,
er ég með strákunum
í snjónum barðist
í hetjulegu stríði.

Svo kom veruleikinn,
bankaði mig í hausinn
er móður mín líf sitt
reyndi að taka.

Ég hætti að vera drengur
og Prinsinn þá varð,
því engum ég hlýddi
í veröld svo hræðilegri.

Faðirinn ekki maður,
því hann laug, sveik,
af því hann var svo
ofboðslega hræddur.

Móðirin ekki kona,
því hún kunni ei að læra,
heldur aðeins að væla
og kenndi öðru fólki um.

Svo einn er ég hér,
er kuldinn í mig nartar.-
Tunglið heilsar mér með
mjúkum kossi og kveður.
Stjörnurnar blikka mig bless.-
Og ég held för minni áfram,
skil eftir mig rauða slóð,
er ég geng inn í eilífðina.-