Þúsundir ef ekki tugmilljónir skálda
vakna á hverjum degi
teygja úr sér
drekka kaffi
vinna vinnu sína farsældlega
góð tannhjól í úrverki samfélagsins
fara síðan heim
borða
elska
sofa
án þess að hafa skrifað staf á blað

heldur vakna
teygja úr sér
og drekka kaffi