Lofa mér góðrar setu,
lygni aftur augunum
og læt hugann leiða mig.
-Líð undir lok,
ferðast neðanjarðar.

Opna augun.
Fæturnir orðnir að rótum,
hausinn blómstrar.

Opna hausinn.
Það rignir út úr mér
óskynsemi.


m.m.