Skuggar.
Þúsund skuggar í tímaleysi óraunveruleikans
Engjast um af ólýsanlegri kvöl
Hrópandi með rödd iðrunar
Syndin glóir í svörtum augunum
Blóð sektarinnar drýpur úr lófum þeirra
Sem teygja sig í átt að himni dauðans
Biðjandi um dvöl í landi regnbogans
mks