Sem maður sem hefur starfað við litbolta þá þykir mér stundum að það ætti að setja, auk aldurstakmarks, greindarpróf fyrir þá sem hyggjast spila litbolta. Það er með ólíkindum hversu margir foráttuheimskir bjálfar hafa lagt leið sína í Kópavoginn og virðast ekki fyrir sitt litla líf ætla að skilja hversu mikilvægt er að hafa grímuna á sér. Það virðist sama hvað maður ítrekar og ítrekar og veitir mörg refsistig að menn, og þó jafnvel enn oftar konur, taka af sér grímuna, sumir hverjir á meðan þeir eru enn inni á miðjum vellinum með skothríðina í gangi umhverfis sig.
…æj, mann langar mest til að binda endi á þetta á mannúðlegan hátt og ná í kindabyssuna.