Það er mikilvægt að láta okkur vita um lið og áhuga á að taka þátt í móti.
LBFR stefnir að því að halda mót, en fyrirkomulag fer eftir fjölda liða. Undirbúningur er annar fyrir 4 - 8 lið en fyrir 15 - 20 lið. Þó mér finnist 5 - 6 lið með 5 manns í liði vera líklega hámarkið sem búast megi við.
Opinbert mót verður líka að halda fullkomlega löglega, á löglegum velli og spilað með löglega innfluttum merkjurum.
Sportinu og okkur öllum væri enginn greiði gerður með því að auglýsa upp mót, löggan mætir kannski og skoðar merkjarana og úr því yrði eitthvað mál.
En fyrst og fremst þurfa menn að hóa saman í lið og láta LBFR vita í paintball@simnet.is