Það er ekki leyfilegt fyrir einstaklinga að flytja inn litboltamerkjara, sjáðu FAQ-inn hér til hliðar með nánari upplýsingar um innflutning.
Hvað annað varðar, þá eru eftirlíkingar af byssum ekki leyfðar, né annað sem líkist svo alvöru skotvopnum að það geti verið tekið í misgripum. Í raun er stór hluti leikfangabyssa þar með á gráu svæði ef ætti að túlka lögin strangt.
En hvellhettubyssur falla klárlega undir það að líkjast alvöru byssum, þar sem þær eru oft nákvæmar eftirlíkingar og geta gert mjög raunverulega hvelli.