Ég hef leitað mikið að verslun í London, aðallega á netinu, en einnig í símaskrám og fleiru þess háttar þegar ég hef verið í borginni.
Það virðist bara ekki vera nein í London. Sú besta sem ég fann er vel rúmlega klukkutíma lestarferð í burtu og heitir Planet Eclipse. Ég hef ekki haft möguleika á að heimsækja hana.
Síðan er Mayhem völlurinn nálægt Theydon Boise neðanjarðarlestarstöðinni, sem er á rauðu línunni (central), önnur eða þriðja stöð lengst í austur. Ferðin tekur um 45 - 50 mínútur frá miðborginni.
Völlur þessi er með verslun og hann heimsótti ég í febrúar 1999.
Síðan er annar völlur í úthverfi Norður-London en hann hef ég ekki haft tækifæri til að heimsækja.
bestu kveðjur
DaXes
LBFR