Ég var að uppfæra eee pc 900 tölvuna mína með eeebuntu base og sit uppi með að hljóðneminn virkar ekki og það er ekkert forrit fyrir vefmyndavélina eins og var í Xandros kerfinu sem fylgdi með tölvunni. Getur einhver bent mér á
1. hvernig ég á að fá hljóðnemann til að til að virka.
2. hvaða forrit er best fyrir vefmyndavélina (Cheese??)
Bætt við 20. febrúar 2009 - 10:34
Takk fyrir
Ég er búinn að fara í alsamixer og breyta þar. Það breytir engu. Hljóðneminn virkar ekki í “Skype” né í “voice recoder”. Eftir að hafa skoða þetta á netinu þá skilst mér að sound serverinn, Pulseaudio sem er í eeepc 900 virkar ekki vel með Skype og þess vegna gangi þetta ekki. Einn netverjinn (eeebuntu forum) hafði tekið út Pulseaudio í gegnum Synaptic manager og sett inn “Esound” sound server og þá vikraði hljóðneminn í Skype hjá honum. Það gerist bara ekki hjá mér. Einhver önnur góð ráð? Hef náð í Cheese og það vikrar vel með vefmyndavélinni.