Sælir
Ég hef nú ekki notað RH 7 ennþá, en hef sett upp mörg mismunandi JRE og JDK á RH 6.2, án teljandi vandræða. Einu vandræðin sem ég hef lent í eru version-conflict, enda var ég að hræra í bæði BEA WebLogic, Allaire JRun og Jakarta Tomcat… en Sun JDK 1.2.2 er það sem ég endaði á að nota (í því tilfelli sem vandræðinu komu upp), þar sem allir þessir pakkar voru sátt við það.
En… hef annars fengið bæði JDK 1.3.1 og JRE 1.1.8 frá IBM til að virka.
Man ekki heldur á að hafa rekist á neinar tilkynningar um sérstök RH 7 vandræði þegar ég var að grúska sem mest í þessu.
En… prófaðu bara. Reyndar fjandi blóðugt að maður má ekki spegla þetta, leiðinda signup og license agreement hjá þessum guttum – ætla samt að skoða það betur þegar ég hef meiri tíma.
Gangi þér vel!
Tolli<BR