Finn engann mun á mér. Keypti þetta af einskærri forvitni til að sjá hvernig mér leið. Keypti eitt pilluglas sem var með blönduðum ginseng jurtum allstaðar að úr heiminum.
En það borgar sig ekki að kaupa þetta að mínu mati. Var samt ekkert mikið að taka eftir því hvernig þetta virkaði á mig. Færð örugglega alveg sama árangur með því bara að drekka nóg af vatni og borða ávexti. Enda eigum við nóg af klórfríu vatni hér á Íslandi. Ef þú værir í Kína þá gæti þetta örugglega hjálpað þar sem þar er annað sem dregur niður lífsgæði eins og mengun í stórborgum og ónóg drykkjarvatn eða klórvatn. Þannig að nema þú viljir vera eitthvað ofurmenni eða sért í einhverju þannig þá er þetta bara böggandi. Gæti trúað að þetta myndi virka fyrir eldra fólk sem hefur litla kynkvöt. Gætir tékkað á einhverjum rannsóknum.