Ég fékk þennan póst í tölvupósti og langaði að deila honum með ykkur þar sem ég er alveg viss um að allir eigi ekki eftir að fá hann:
Ástæðan sem forráðamenn kvikmyndahúsa gáfu fyrir hækkunum á miðaverði á
sínum tíma var að dollarinn væri svo hár, og það var rétt, dollarinn fór
upp í 112 krónur á tímabili og því var rík ástæða fyrir þessu miðaverði.
En nú stendur dollarinn í tæpum 77 krónum, hefur lækkað um 31% síðan hann
var hæstur en ekkert bólar á verðlækkunum.
Sýnum vilja okkar í verki og sleppum því að fara í bíó dagana 13. - 23.
febrúar, sýnum að við séum ekki sátt við þetta verð og krefjumst úrbóta.
Að sjálfsögðu fellur þetta “verkfall” niður ef miðaverð lækkar á
tímabilinu.
Sendið þetta til allra sem þið þekkið fyrir 13. febrúar.
p.s. Til að þessi áskorun verði auðlesnari mæli ég með því að innihaldið sé
afritað í nýtt skeyti við hverja áframsendingu, annars fyllist pósturinn
bara af netföngum og > merkjum
Kveðja,
Smileforme