Virtual Boy var fyrsta “handheld” leikjatölvan sem var fær um að sýna “alvöru 3D grafík”. Þessi tölva var flopp frá byrjun til enda, og var hún aðeins eitt ár á markaði í Japan og í Norður-Ameríku - hún kom aldrei til Evrópu.
Eftir smástund í spilun kvartaði fólk líka yfir eymslum í augum og öðru slíku - svo að vélin varð aldrei vinsæl.
Og eins og þið sjáið kannski var það aldrei mögulegt fyrir annan aðila að horfa á leikinn hjá hinum, sem gerði tölvuna ekki vinsæla hjá vinahópum. Ólíkt Nintendo Wii, seldist þessi “aðeins” í 770 þúsund eintökum.