Jæja, ég verð að taka ofan af mér hattinn fyrir þig. Þú virðist hafa farið í gegnum ríflega 500 svör eftir mig til þess að finna síðasta svar þar sem ég kallaði einhvern heimskan. Og það af góðri ástæðu. Ég nota ekki þetta orð nema það eigi virkilega við, sem það átti, þar sem að notandinn sem ég notaði orðið á hafði hvað eftir annað gjörsamlega hundsað rök mín um verðlagningu á PlayStation 3, og ekki var hann beint að spara orðin í svörum sínum sjálfur.
En þegar allt kemur til alls þá hefur þú engu að síður engan rétt á að standa í persónuárásum sjálfur. Samt stendurðu í því að leita að gömlum persónuárásum frá mér sjálfum (hef skrifað um 500 svör EFTIR að eftirfarandi tilvitnanir komu fram) til þess eins að verja þín eigin svör.
Þú segir mig vera að kasta steinum úr glerhúsi, en ég sé ekki betur en að þú sért sjálfur í boltaleik í kristalvöruverslun… sér í lagi þar sem þú hófst þetta blessaða rifrildi sjálfur að eigin fordæmi. Ég hef kannski tröllast í gegnum mína tíð en þú ert engu skárri, þursinn þinn.
Lifðu heill, og slepptu því að svara… hnífar og skæri eru ekki barna meðfæri.