Ég hef aldrei skilið þetta Raiden hatur. Mér fannst hann fínn karakter í MGS2, fanboyarnir voru bara svo fúlir að maður fékk ekki að spila sem Snake allann leikinn. En mér fannst þetta persónulega brilliant move hjá Kojima því með þessu fékk maður að sjá Snake frá svona “áhorfenda” sjónarhorni sem gaf persónunni meiri dýpt. Raiden virðist vera orðinn að einhverju viðrini núna, með einhverja yfirnáttúrulega krafta (bardagaatriðið með honum í trailernum er eitt flottasta myndband sem ég hef séð í tölvuleik). Nú er Raiden orðinn algjör badass og það kaldhæðnislega er að núna eru allir að vonast eftir því að maður geti spilað sem hann hehe