Jú, ég átta mig fullkomlega á því.
En það breytir bara engu um það sem ég sagði. Ég á ekki í neinu stríði við PS3 eigendur, ekki frekar en ég á í stríði við eigendur Reach tannbursta, þó ég eigi nú sjálfur Colgate.
Ég get engan veginn haft samúð með þeim sem voru fúlir því að Final Fantasy 13 kæmi líka á 360, þar sem það hefur engin áhrif á spilun þeirra af leiknum. Ég hef aftur á móti þó nokkra samúð með PS3 eigendum sem langar til að spila áður nefnt DLC fyrir GTA IV en geta það ekki. Í raun efast ég sterklega um að þessi vitleysa muni borga sig fyrir Microsoft, þar sem ég held að fáir (a.m.k. fáir miðað við þessa fáránlegu upphæð sem þeir borguðu Rockstar) hafi keypt sér tölvu bara fyrir GTA IV, og þá enn síður út af einhverjum aukapökkum.