Agent Under Fire erfiður í stjórn!
Ég keypti mér Agent Under Fire í dag og ég verð að segja að hann var nokkur vonbrigði fyrir mig. Grafíkin er flott og vopnin og allt það en stýringin er erfið, þ.e.a.s. það er erfitt að stjórna honum þegar þú ert í 1.persónu missionum. Kannski á maður eftir að venjast þessu en ég á í nokkrum vandræðum núna með þetta. Eiga einhverjir fleiri við þetta vandamál að stríða?