fann líka þetta :P
á
www.tollur.is GjafirÍ ákveðnum tilvikum þarf ekki að greiða tolla og gjöld af gjöfum sem sendar eru til landsins.
Gjafir sendar af sérstöku tilefni
Gjafir sem aðilar búsettir erlendis hafa með sér eða senda hingað til lands af sérstöku tilefni, þó ekki í atvinnuskyni, eru undanþegnar aðflutningsgjöldum að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
1. Að verðmæti gjafar samkvæmt framlögðum reikningi sé ekki meira en 10.000 kr. Fylgi reikningur ekki vörusendingu áætlar tollstjóri verðmætið með hliðsjón af líklegu smásöluverði hér á landi. Sé verðmæti gjafar meira en 10.000 kr. eru aðflutningsgjöld reiknuð að því marki sem verðmætið er umfram þá fjárhæð. Brúðkaupsgjafir eru undanþegnar aðflutningsgjöldum þótt þær séu meira en 10.000 kr. að verðmæti, enda sé að mati tollstjóra um eðlilega og hæfilega gjöf að ræða.
2. Að viðtakandi sýni fram á að um gjöf af sérstöku tilefni sé að ræða. Gjafir vegna afmælis, brúðkaups, jóla eða fermingar teljast meðal annars vera gjafir af sérstöku tilefni í þessu sambandi.
3. Að sending beri með sér að um sé að ræða gjöf frá tilteknum aðila búsettum erlendis og að tengsl séu á milli þess aðila og gjafþega.
4. Sé ljóst af fylgiskjölum eða samsetningu gjafasendingar að hún sé ætluð tveimur eða fleiri aðilum og gjöfunum hafi eingöngu af hagkvæmnisástæðum eða vegna tilefnis sendingar verið pakkað saman til flutnings er gjöf til hvers og eins talin sjálfstæð gjöf við mat á því hvort gjöfin teljist innan verðmætamarka.