Það eru til ýmsar útfærslur af þessu moddi.
Hægt er að lóða aukalegan kubb í vélina, tengja hann við moddaðan kubb, tengt með vírum í rofa, og nota hann til að svissa á milli moddaðs og ómoddaðs.
Þannig gætirðu spilað offline með þína Backup leiki, og online með orginal leikjum, ef að paranoian er í hámarki.
Þeir sem aftur á móti fara eingöngu út í fw moddun á dvd drifinu, hafa ekki þennan möguleika á að skipta á milli moddaðs og ómoddaðs. En hins vegar hefur enginn verið bannaður fyrir þessi mods enn sem komið er, þó svo þau hafi verið í gangi í þó nokkurn tíma.
Þar sem fw moddið inniheldur kóða sem skilar alltaf upprunalegum niðurstöðum ef query er sent á kubbinn, þá er ekki einu sinni víst að þeir geti detectað þetta í dag.