Það er tvennt sem þú getur sagt við móður þína.
1. Þetta eru einungis tillögur frá PEGI, ekki lög. Allar flokkanir frá þeim hvort sem útskýringar um innihald eða aldur eru TILLÖGUR / eitthvað sem PEGI samtökin MÆLA MEÐ ekki lög.
2. PEGI athugasemdirnar sjálfar eru ekki einu sinni “gildar” á Íslandi samkvæmt þeim sjálfum:
(sem þýðir að ef ég forrita einhvern mest brútal leik í heimi og gef hann einungis út á Íslandi þá gera þeir ekki “athugasemdir” né “tillögur” við hann)
PEGI-kerfið gildir í eftirfarandi löndum:
Austurríki Belgíu Danmörku Finnlandi
Frakklandi Grikklandi Írlandi Ítalíu
Lúxemborg Hollandi Noregi Portúgal
Spáni Svíþjó Sviss Bretlandi
Lestu yfir upplýsingarnar á www.pegi.info og fáðu svo móður þína til að lesa yfir það helsta sem þú vilt að hún skilji.