Nú um dagana keypti ég mér leikinn Destroy All Humans. Bar miklar væntingar til hans útaf því að ég hrífst af svona geimveruleikjum og svoleiðis.
Ég get sagt að ég varð fyrir dálitlum vonbrigðum.
Leikurinn fjallar um Crypto sem er sendur frá plánetunni Furion til Jarðarinnar til að undirbúa innrásina frá heimaplánetunni og til að rannsaka mennina.
Fyrsta sem ég tek eftir við leikinn eru óþægilegir takkarnir. Takkarnir sem settir eru saman í leiknum eru gríðarlega pirrandi og leiðinlegir.
Þarft stundum að halda þremur tökkum inni í einu og einbeita þér að því að verða ekki skotinn af einhverjum bóndanum.
Grafíkin er bara góð. En t.d. er líka óþolandi þegar maður er í geimskipinu sínu og er að eyðileggja hús og heilu þorpin, þá kemur alltaf fleira fólk endalaust.
En annars er allt mjög flott í þessum leik nema stjórntækin og sumt í leiknum.
Mæli annars bara með þessum leik fyrir alla sem fíl myndina Mars Attacks!