Þetta mál hefur svolítið verið rætt hérna, en munurinn á evrópu og svo usa er Pal/Ntsc kerfin. Án þess að ég geti útskýrt þetta almennilega þá mun þetta virka þannig að þú munt líklega ekki getað spilað leik sem þú kaupir í usa nema að vera með moddað box sem getur skipt á milli Pal og Ntsc og svo að vera með sjónvarp sem getur skilið bæði kerfin. Ef sjónvarpið skilur það ekki mun þetta bara koma svarthvítt hjá þér, og jafnvel þótt að þetta sé góður leikur, þá efast ég um að þú nennir því.
Þú getur hugsanlega leitað hérna á korkunum eða á xbox.is eftir nánari útskýringum á hvers vegna þetta er svona.