Smá svona tips Juggernaut… Smá ábendingar úrþví að við vorum að tala um góðar kannanir. Mín skýring á góðri könnun er fyrst og fremst vel skipulögð, ekki með of marga liði(skiptir minna máli), en fyrst og fremst að maður sjái eitthvað útúr henni eftirá.
Mér fynnst þessi könnun eins og þú hafir hent henni upp í flýti og leitt hugan að því hvað væri hægt að gagnrýna í leiknum.
Vandamálið er að sumir liðirnir eru of nákvæmir(fynnst mér) til að þeir geti staðið með hinum, hefði verið betra bara að hafa grófa könnun, grafík, sagan(gleimdir því), stærðin á leiknum og eitthvað í þeim dúr.
Svo þegar sú könnun er komin eitthvað á leið væri hægt að starta ýtarlegri umræðu um hvað hefði mátt fara betur, á kork.
Og já, ég svaraði ekki könnunin útafþví að mér fannst sögurþráðurinn í GTA:SA það versta við leikinn.