Maður gerir meira en að drepa alla sko. Maður er 50 tíma að klára missionin og eftir þau eru endalaust af aukamissionum og maður getur tekið yfir hverfi, keypt sér hús, látið breyta druslum í Fast and the Furious bíla, flogið herþotum, júmbóþotum á stærð við blokk, farið í þríþraut, verið lögga og valið hvort maður vill vera lögga á skriðdreka, herþyrlu, löggumótorhjóli eða löggubílum (maður getur meira að segja tekið klíkumeðlimi með sér í það), maður getur brotist inn í hús, farið í pool, veðjað á hesta, farið í spilavíti og það er svo rosalega margt sem að gerir þennan leik skemmtilegan að ég gæti samið bók um alla möguleikana.