Mér finnst nú þessar löggur sem og aðrir aukakarakterar í þessum leik séu bara nautheimskt.
Ég gekk t.d inn á bar í Los Santos og þar voru nokkrir “thugs” sem gengur í hringi, fram og til baka, á hvorn annan, röflandi og bara í kaos. Óttalega kjánalegt. Vegfarendur út á götu eru líka frekar kjánalegir. Maður miðar á þá með byssu og þeir rétta upp hendurnar, en aðrir vegfarendur labba bara framhjá. Sama á við ef maður er búinn að stúta einhverju gaur og hann liggur í blóði sínu, þá ganga aðrir bara framhjá og já, löggan líka.
Svo meira varðandi lögguna, ég var kominn með 3 í wanted og ég var með 2 löggubíla á eftir mér, ég fór úr bílnum og hljóp að einhverju húsi og upp stiga, beið á stigapallinum og horfði niður. Löggurnar hrúguðust saman þarna undir og gengu á vegginn á fullu. Ein löggan, mótorhjólalögga, var sífelt að fara af og á hjólið og fór nokkrum sinnum smá hring á götunni og kom aftur, fór af hjólinu, hljóp smá frá því og fór svo aftur á það… Eftir smá stund þá fór wanted af mér og löggurnar fóru hver sína átt, ég fór niður og gekk framhjá þeim og þær gerðu ekkert…
Ef A.I. hefur verið bætt í þessum leik, hversu slæmt var það þá? O_O
Þetta er undirskrift