Með þessu þarftu að nota annað hvort svona slide tool, eða fliptop eða þú getur búið þér til þitt eigið slide tool úr gömlu kreditkorti, ég gerði það.
Ef þú notar slide tool, heimatilbúið eða ekki, þá þarftu að taka frontið af geisladrifinu á tölvunni þinni, svo seturðu Swap Magic disk í, svo notarðu tólið til að færa pinnann (sem opnar drifið) til hægri og þá opnast það. Þá seturðu leikinn í, lokar drifinu og notar tólið til að setja pinnann til vinstri, aftur á sinn stað. Þá ýtirðu bara á X á stýripinnanum og þá ætti leikurinn að byrja.
Ef þú kaupir þér fliptop (fæst á sömu síðu), þá þarftu að opna tölvuna þína, taka efri hlutann af henni og setja flip top í staðinn. Fliptop virkar eins og gamla PS1 tölvan, þ.e. þú skiptir um leik með því opna tölvuna að ofan. Fliptop er þannig mjög þægilegt í notkun. Ef þú tímir að kaupa þér þannig þá mæli ég eindregið með því.
jogi - smarter than the average bear