Tjah, ég hef ekki spilað hinn diskinn mikið ennþá. Er að dunda mér við Wind Waker í törnum annað slagið núna.
Eftir að hafa borgað 6000+ kr. fyrir Zelda leikinn brunaði ég heim og í eitthverju fáti dritaði ég disknum í GCinn minn og byrjaði að spila. Það sem ég fékk út úr þessu var hjartaáfall því að það sem blasti við mér var eitthver sú lélegasta grafík sem ég hafði séð í lengri tíma… svipað og fyrstu PS1 leikirnir. En svo sá ég að ég hafði skellt bónus disknum í, en ekki rétta disknum og þá batnaði mér. Ég ætla að gefa bónus disknum séns þegar ég er búinn að klára allt sem hægt er að klára í Wind Waker. :P<br><br>“Life is a deadly meaningless sexually-transmitted desease”
<a href="
http://kasmir.hugi.is/Alliat/">SÍÐAN MÍN!</a