Hafið þið einhverntímann lent í því að þegar það er verið að setja upp sýningu sem þið eruð í og þið þurfið að leika atriði sem ykkur þykir mjög óþægilegt? Ef einhver er með þannig sögu þá langar mig að heyra hana =)
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.
Í leikritinu sem ég er í núna eiga að vera nokkrir kossar sem leikarar eru missáttir við… mjög fyndið þegar þau byggja upp svaka “tension” og sleppa svo kossinum :D *búúúúú*
Ekki ég sem ér í þessum atriðum reyndar, en ég á að vera í einhverjum hallærislegustu dansatriðum sem um getur… ég veit ekki hvort ég á að hlakka til eða kvíða fyrir :S
Lenti líka einu sinni í að eiga að snúa aðra stelpu niður, og þar sem ég er mjög léleg í slíku vissi ég aldrei hvernær ég var að gera það rétt og hvenær ég var bara að meiða hana… og svo steig ég stundum ofan á strák í sama atriði. Það vildi til að þessi sena var í lok leikritsins svo enginn þurfti að vera lengi á sviðinu sárþjáður. Þetta varð bara reunverulegra :D
Í leikritinu sem ég lék í í fyrra þurftu tveir krakkar að leika nauðgun…. ekki samt svona allt dæmið heldur bara byrjunina á því. Þegar hann er að leggja hana niður…. Var svo vandræðalegt að aðriri leikarar í hópnum fengu ekki að sjá það nema einu sini fyrir sýningar….=/
En ég hef aldrei lent í eitthverju MAJOR óþæginlegu atriði en I could feel the pain hjá krökkunum…..=´D
Jaaaa…einu sinni átti ég að leika mjög graðan perra XD Annars dettur mér ekkert neitt mjög óþægilegt í hug…leiklist snýst um að gera sig að fífli..ekki rétt? :D :P
Nei, leiklist snýst frekar um að þora að gera sig að fífli.. eða gera í raun hvað sem er til þess að gera sýninguna flotta, ekki bara að gera sig að fífli. Maður gerir sig að fífli ef maður er lélegur leikari en ef maður leikur eitthvað fíflalegt og gerir það vel verður það engan veginn fíflalegt ;)
Nee.. held ekki.. Það var alltaf sjúklega vandræðalegt á æfingum þegar maður var lítill og einhver þurfti að kyssa einhvern en núna er þetta bara partur af leikhúsinu, þegar aðalleikarinn kyssir aðalleikkonuna…
Er að æfa núna leikrit þar sem erótísk snerting á sér stað og það er pínu óþægilegt því ég hef alltaf leikið svona klikkuðu einmanna gauranna hingað til. En samt gaman að prufa nýtt
þegar að ég lék í Það grær… í Kopleik (leikfélag kópavogs) þá var eitt atriði sem að mér fannst óþægilegt.
Það var þegar að ég átti að vera að tala við „ástina“ mína og segja henni hvernig mér leið og allt það og síðan þegar að hún var að fara að labba útaf sviðinu þá átti ég að henda mér á hana og grípa um löppina á henni. Mjög desperat ákvörðun hjá mínum karakter. Síðan var ég kominn með tak á henni og hélt utan um hana þá kom „systir“ hennar inn og áleit það að ég væri að reyna að nauðga henni.
Þetta er svona mest óþægilega atvikið sem að ég hef lent í.
Tja, í einu leikriti þurfti ég að kafa ofan í klósett, húkka í 10 stiga frosti í nærbol einum klæða, velta mér uppúr drullu fyrir hverja sýningu, öskra þar til það leið yfir mig, var ég búinn að minnast á að ég þurfti að kafa ofan í klósett og að lokum þurfti ég að troða einhverjum óþekktum aðskotahlut upp í rassgatið á mér. Annars var þetta svona sæmilega óþægilegt allt saman.
ég þurfti einu sinni að klæða mig í línu langsokk búning (hann var sennilega á svona 6-7 ára krakka) og ég þurfti að syngja einhverskonar frumskógarlag sem var ótrúlega ömurlegt og pabbi minn og litli bróðir voru orðnir rauðir af hláttri ;'( það var hræðilegt
Fyrir rúmu ári lék ég í leikritinu Rocky Horror Pictre Show í Menntaskólanum í Kópavogi. Þar sem að ég var í hlutverki Brad Majors þurfti ég að “sofa” hjá Frank ‘N’ Furter!
Í hlutverki hans var strákur sem var að verða tvítugur sem ég þekkti ekki neitt. Mér hefur aldrei liðið jafn kjánalega einsog þegar við vorum að byrja að æfa þetta.
Eftir vandræðaleg hik fékk leikstjórinn nóg og spurði hvort annar hvor okkar væri hommi? Við svöruðum báðir neitandi (hann átti kærustu) og þá sagði hann okkur að hætta þessu væli og leika þetta undir eins.
Mjög erfitt í fyrstu skiptin en svo vorum við orðnir hrikalega góðir í þessu haha!
Ég lék í Hárinu í fyrra.. og það var kannski ekki nein atriði sem voru það óþægileg. En æfingarnar voru það. Til þess að gera hópinn svo náinn og tilbúinn í að káfa hvort á öðru og fíla sig eins og hippa þá fórum við oft í leik á æfingum og upphitunum þar sem allir áttu að vera með lokuð augu og finna aðra manneskju og svo áttum við að “káfa” hvort á öðru.. Finna fyrir öllum líkamanum.. og svo ganga á næsta mann og gera það sama. Það var freeekar óþægilegt..
Jú og svo í sama leikriti vorum við að feika það að reykja.. nema það voru alvöru uppvafðar sígarettur og þar sem ég reyki ekki og finnst það ógeðsleg finnst mér líka ógeðslegt að setja sígarettu í munninn á mér þó að ég sé ekki að sjúga að mér reyknum…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..