Mesti viðbjóður sem ég hef séð lengi, ekki misskilja , ég fílaði fyrstu alveg þokkalega, en þessi var horbjóður… Ein vitlausasta mynd sem ég hef séð, sem skildi ekkert eftir sig nema pirring og eftirsjá að hafa spreðað þúsundkalli í hana. Bætti reyndar upp að ég fékk frítt poppogkók…
Haha, ég er svo sammála, hann gerir ekkert alla myndina á meðann ALLIR eru að deyja. Hann hefði getað bjargað bókstaflega öllum í myndinni. Og hvar í fjandanum voru gangandi trén í fyrstu myndinni? Fleiri líf sem hann hefði getað bjargað hefði hann bara nennt að kalla þau fram.
ég hata hata hata hata hata hata svona myndir. Ég sá mikið úr fyrstu myndinni og þvílíkt crap. Þessa ætla ég aldeilis ekki að sjá, það liggur við að maður taki bara sveig framhjá plakatinu af henni þegar maður labbar framhjá bíóinu.
Hahah, ég skemmti mér konunglega að horfa á þessa í iPodinum þegar ég gat ekki sofnað. Samt ömurleg all the same. Finn bara til einhverrar skyldu til þess að sjá þær ásamt Potter myndunum vegna þess að bækurnar voru frábærar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..