Þessi mynd, þó hugmyndin sé ekki beint frumleg (gera það fyrir skólalok), þá er hún svo einstaklega vel skrifuð og svo rosalega fyndin að það er ekki hægt að kalla hana klisju.
Ég man reyndar ekki alveg hvernig hún endaði, en ég meina, þeir náðu að redda áfenginu, og þeir fengu báðir gellurnar sem þeir vildu og allt endaði vel og þeir urðu aftur vinir.
Flestar amerískar myndir enda eins, semsagt vel, sem sökkar.
Já, þú baðst mig um að segja afhverju hún væri fyrirsjáanleg og ég svaraði.
Ég er bara þreytt á sjá alltaf sömu myndirnar aftur og aftur með mismunandi leikurum og umhverfi. Það getur alveg verið frumlegur söguþráður þó að þetta sé grínmynd.
En það virðast samt allir aðrir vera á annarri skoðun heldur en ég, sem ég skil ekki.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..